Golf

Ólafía fær mögulega að spila á tæplega þriðjungi LPGA-mótanna

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fær líka að spila eitthvað áfram á LPGA-mótaröðinni.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fær líka að spila eitthvað áfram á LPGA-mótaröðinni. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður ekki með fullan þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni í golfi á næsta ári, sterkustu mótaröð heims, eins og hún var með í ár.

Ólafía náði ekki eftir að fylgja frábæru fyrsta ári sínu á LPGA-mótaröðinni en hún er í kringum 200. sætið á stigalista LPGA en aðeins 148 efstu eru með fullan keppnisrétt, að því fram kemur á vefnum golf.is.

Þar segir að talsverðar líkur eru á því að Ólafía Þórunn fái að spila á um það bil sjö til tíu mótum, samkvæmt upplýsingum vefjarins, en það er tæplega þriðjungur mótananna á LPGA. Alls voru 33 mót á mótaröðinni í ár en þeim verður fjölgað á næsta ári og verðlaunaféð hærra á fleiri mótum.

Þar sem að spilað verður á fleiri mótum má búast við því að fleiri kylfingar sleppi mótum við og við til að hvíla sig en þá opnast möguleikar fyrir þá sem eru lægra skrifaðir eins og Ólafía.

Samhliða því að reyna að spila á eins mörgum mótum á LPGA og hægt er verður Ólafía Þórunn með á nokkrum mótum á Symetra-mótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×