Innlent

Skjálfti skammt frá Bláfjallaskála

Atli Ísleifsson skrifar
Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu.
Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu. vísir/vilhelm
Skjálfti af stærð 3,3 varð um fjórum kílómetrum norður af Bláfjallaskála klukkan 11:44 í morgun.

Í tilkynningu  frá Veðurstofunni segir að ábendingar hafi borist um að skjálftinn hafi fundist víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði.

Tveir eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið. Þetta er virkt sprungusvæði og því þekkt jarðskjálftarsvæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×