Innlent

Bönnuðu vinnu í fiskvinnslum í Sandgerði og Hafnarfirði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Á vef Vinnueftirlitsins segir að við eftirlitsheimsókn til AG-seafood þan 1. nóvember síðastliðinn hafi komið í ljós að búið var að aftengja öryggisbúnað og fjarlægja hlífar á flatfiskflökunarvél. Myndin er úr safni.
Á vef Vinnueftirlitsins segir að við eftirlitsheimsókn til AG-seafood þan 1. nóvember síðastliðinn hafi komið í ljós að búið var að aftengja öryggisbúnað og fjarlægja hlífar á flatfiskflökunarvél. Myndin er úr safni. fréttablaðið/gva
Vinnueftirlitið bannaði vinnu í fiskvinnslu AG-seafood ehf. í Sandgerði og í fiskvinnslu Tor ehf. í Hafnarfirði fyrr í þessum mánuði.

Á vef Vinnueftirlitsins segir að við eftirlitsheimsókn til AG-seafood þan 1. nóvember síðastliðinn hafi komið í ljós að búið var að aftengja öryggisbúnað og fjarlægja hlífar á flatfiskflökunarvél.

Var vinna við vélina því bönnuð þar sem lífi og heilbrigði starfsmanna var talin hætta búin við notkun hennar.

Búið er að gera úrbætur á vélinni og hefur vinna verið leyfð að nýju.

Þá var farið í eftirlitsheimsókn hjá Tor þann 13. nóvember síðastliðinn og kom þá í ljós að einnig þar var búið að aftengja öryggisbúnað og opna hlífar á flatfiskflökunarvél.

Vinna við þá vél var bönnuð en búið er að gera úrbætur á henni og er nú leyfilegt að vinna við vélina á ný.

Ákvarðanir Vinnueftirlitsins má sjá hér og hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×