Viðskipti innlent

Bein útsending: Hvar vilja konur vinna?

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Fundurinn hefst klukkan 17.15.
Fundurinn hefst klukkan 17.15. Mynd/Íslandsbanki.
Íslandsbanki heldur opinn fund á Hilton í dag klukkan 17.15 undir yfirskriftinni „Hvar vilja konur vinna?“ Vísir sýnir fundinn í beinni útsendingu.

„Engin kona starfar í dag sem verðbréfamiðlari á Íslandi, fáar konur sækja á sjó og hraðar tæknibreytingar munu hafa hvað mest áhrif á þau störf sem konur vinna í dag. Jafnframt eru fáar konur sem komast í gegnum glerþakið og inn í efstu lög fyrirtækja.

Er raunhæft að jafn margar konur og karlar sinni öllum störfum? Hvernig viljum við sjá kynjahlutföll í ólíkum atvinnugreinum? Hvernig má auka áhuga kvenna á greinum þar sem þær eru fámennari? Munu konur sækja í tæknistörf framtíðarinnar?,“ segir á Facebook-síðu Íslandsbanka um fundinn sem horfa má á í beinni útsendingu hér fyrir neðan.

Dagskrá

Karla- og kvennastörf

Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóri Íslandsbanka

Hvar eru konurnar?

Sigrún Hjartardóttir, fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka

Í framhaldi verða stuttar framsögur og umræður þar sem þátttakendur verða:

- Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi

- Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar

- Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startup

- Guðmundur Hafsteinsson, yfirmaður vöruþróunar á Google Assistant

- Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka






Fleiri fréttir

Sjá meira


×