Handbolti

Þrjú mörk frá Óðni í tapi │Sjáðu frábæra takta

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Óðinn í leik með FH á síðustu leiktíð þar sem hann lék frábærlega.
Óðinn í leik með FH á síðustu leiktíð þar sem hann lék frábærlega. vísir/vilhelm
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði þrjú mörk í tapi GOG fyrir Skanderborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Leikurinn var mjög jafn og skiptust liðin á að vera með forystuna í fyrri hálfleik. Þegar flautað var til leikhlés var staðan 17-15 fyrir heimamenn í Skanderborg.

Þegar seinni hálfleikur var hálfnaður náði GOG að jafna metin í 22-22. Heimamenn komust svo aftur yfir og á lokakaflanum náðu þeir að tryggja sér sigurinn, lokatölur 32-29.

Emil Jakobsen var markahæstur í liði gestanna með átta mörk. Hjá Skanderborg skoraði Cornelius Åstrup einnig átta mörk.

Eitt marka Óðins var einkar glæsilegt og má sjá myndband af því hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×