Fótbolti

Markalaust jafntefli hjá Íslendingaliði Rostov

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Sverrir í leik með Rostov
Sverrir í leik með Rostov
Íslendingaliðið Rostov gerði markalaust jafntefli við Dynamo Moskvu í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.



Þrír Íslendingar komu við sögu í leiknum í dag en það voru þeir Sverrir Ingi Ingason, Björn Bergmann Sigurðarson og Viðar Örn Kjartansson. Þeir tveir fyrrnefndu léku allan leikinn en Viðar kom inn á þegar um tíu mínútur voru til leiksloka.

 

Sverrir nældi sér í gult spjald í leiknum í dag.



Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Rostov í dag.



Jafnteflið kemur Rostov í 23 stig, og jafna þeir Krasnodar að stigum í 3.-4. sæti deildarinnar.



Rostov er átta stigum á eftir toppliði Zenit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×