Handbolti

Sigvaldi markahæstur í tapi Elverum í Meistaradeild Evrópu

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Sigvaldi skoraði sjö mörk úr sjö skotum í dag
Sigvaldi skoraði sjö mörk úr sjö skotum í dag ehfcl.com
Sigvaldi Björn Guðjónsson var markahæstur leikmanna Elverum er liðið tapaði gegn Orlen Wisla Plock í Meistaradeild Evrópu í dag.



Elverum byrjaði vel í dag og náði fjögurra marka forystu um miðbik fyrri hálfleiks en þá fór að halla undan fæti.



Wisla Plock komst betur inn í leikinn og höfðu þeir yfirhöndina það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og leiddu þeir 17-15 í hálfleik.



Seinni hálfleikur spilaðist svipað og sá fyrri og var jafnt þegar um stundarfjórðungur var eftir af leiknum.



Aftur tóku Wisla Plock við sér og náðu þeir tveggja marka forystu sem þeir héldu út allan leikinn en lokatölur urðu 30-28.



Sigvaldi átti flottan leik fyrir Elverum en hann skoraði sjö mörk úr sjö skotum.



Þráinn Orri Jónsson komst ekki á blað í leiknum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×