Fótbolti

Rúnar Alex fékk tvö mörk á sig í tapi gegn Marseille

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Rúnar Alex í leik með Dijon
Rúnar Alex í leik með Dijon
Rúnar Alex Rúnarsson lék allan leikinn í marki Dijon er liðið tapaði 2-0 gegn stórliði Marseille.



Stigasöfnun Rúnars og félaga í Dijon hefur gengið erfiðlega eftir fína byrjun í vetur.



Í kvöld heimsótti Dijon stórlið Marseille.



Marseille sigraði leikinn 2-0 en Lucas Ocampos og Adil Rami skoruðu mörk heimamanna.



Dijon er nú komið í fallsæti frönsku úrvalsdeildarinnar en liðið er einu stigi frá öruggu sæti.



Þá var Kolbeinn Sigþórsson ekki í leikmannahóp Nantes er liðið gerði jafntefli við Rennes, en hann er fastur í frystikistunni í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×