Sport

Aftur markakóngur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Andri Rúnar Bjarnason
Andri Rúnar Bjarnason Mynd/Fésbókarsíða Helsingborgar
Fyrsta tímabil Andra Rúnars Bjarnasonar í atvinnumennsku hefði vart getað gengið betur. Eftir 19 marka tímabilið með Grindavík í fyrra, þar sem Andri Rúnar jafnaði markametið í efstu deild og var valinn besti leikmaður hennar, gekk hann í raðir sænska B-deildarliðsins Helsingborg í vetur. Og Bolvíkingurinn sýndi með frammistöðu sinni á nýafstöðnu tímabili að hann er ekkert eins tímabils undur.

Andri Rúnar skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Helsingborg á Varbergs BoIs í lokaumferð sænsku B-deildarinnar á laugardaginn. Helsingborg vann deildina og tryggði sér þar með sæti í sænsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Andri Rúnar skoraði alls 16 mörk í 27 leikjum í sænsku B-deildinni í ár og var markakóngur hennar. Hann gaf einnig sex stoðsendingar og kom þannig með beinum hætti að 22 af 59 mörkum Helsingborg í deildinni.

Svo fór að Andri Rúnar var valinn leikmaður ársins hjá Helsingborg. Þess má geta að ekki ómerkari leikmaður en Henrik Larsson fékk þessi verðlaun í þrígang (1992, 2007, 2009).

Síðustu tvö tímabil hefur Andri Rúnar skorað samtals 35 mörk í 49 leikjum í Pepsi-deildinni og sænsku B-deildinni. Og hann er tveimur gullskóm ríkari. Ekki amaleg uppskera hjá framherjanum öfluga.

Góð helgi varð enn betri fyrir Andra Rúnar þegar hann var valinn í íslenska landsliðið í gær. Hann kemur inn í hópinn í staðinn fyrir Jóhann Berg Guðmundsson sem er meiddur.

Andri Rúnar hefur leikið tvo landsleiki, báða gegn Indónesíu í byrjun þessa árs, og skorað eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×