Fótbolti

Fyrsta skiptið sem Messi skorar tvö en Barcelona tapar

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Tvö mörk Messi dugðu ekki til í kvöld
Tvö mörk Messi dugðu ekki til í kvöld Vísir/Getty
Það er ekki oft sem Lionel Messi skorar en þrátt fyrir það Barcelona tapar.



Í kvöld gerðist það í fyrsta sinn að Messi skori tvö mörk í leik fyrir Barcelona og að það dugi ekki til.



Barcelona tapaði 4-3 gegn Real Betis á heimavelli í dag en Betis leiddi 2-0 í hálfleik.



Messi minnkaði muninn úr vítaspyrnu á 68. mínútu en skömmu síðar komst Betis í 3-1.



Vidal minnkaði svo muninn aftur fyrir Barcelona en Betis jók þá muninn aftur skömmu síðar.



Messi lagaði svo stöðuna í uppbótartíma þegar hann skoraði sitt annað mark, lokatölur 4-3.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×