Fótbolti

Ingvar á toppnum í Danmörku og fengið á sig næst fæst mörk

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ingvar er að gera góða hluti í Danmörku.
Ingvar er að gera góða hluti í Danmörku. mynd/viborg
Ingvar Jónsson og félagar í Viborg eru á toppnum í dönsku B-deildinni eftir 3-1 sigur á Helsingør í síðasta leik sautjándu umferðarinnar í kvöld.

Viborg var komið í 2-0 snemma leiks og þriðja markið kom svo eftir 50 mínútur. Helsingør minnkaði svo muninn á 69. mínútu en nær komust þeir ekki og lokatölurnar 3-1.

Ingvar gekk í raðir Viborg í byrjun tímabilsins en liði ðhefur verið að spila frábærlega á tímabilinu. Þeir eru á toppnum með 32 stig, fimm stigum á undan Silkeborg.

Einungis eitt lið hefur fengið á sig færri mörk en Viborg á tímabilinu (21 mark) en það er Nyköbing. Þeir hafa fengið á sig tuttugu. Efsta liðið fer beint upp í úrvalsdeildina en númer tvö og þrjú fara í umspil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×