Enski boltinn

Brjálaður Austin vakti lukku í Messunni

Anton Ingi Leifsson skrifar
Charlie Austin, framherji Southampton, var heldur betur pirraður eftir 1-1 jafntefli Southampton gegn Watford í ensku úrvaldsdeildinni um helgina.

Charlie Austin skoraði mark í leiknum sem var dæmt af en með hjálp VAR hefði markið að öllum líkindum verið dæmt gilt.

Austin beindi spjótum sínum að dómurum leiksins í viðtali eftir leikinn og það vakti athygli strákanna í Messunni.

Enski framherjinn var mjög reiður en viðtalið og viðbrögð Rikka G, Hjörvars Hafliðasonar og Ólafs Inga Skúlasonar má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×