Gjaldþrot Rosenberg nam 43 milljónum Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. nóvember 2018 13:45 Frá Kaffi Rosenberg, sem rekið var við Klapparstíg 27.
Engar eignir fundust í búi Kaffi Rosenberg, tónleikastaðarins sem rekinn var við Klapparstíg 27. Staðurinn var tekinn til gjaldþrotaskipta í apríl, sem nú er lokið, en alls voru gerðar kröfur upp á rúmlega 43 milljónir króna í búið eins og fram kemur í Lögbirtingablaðinu. Rosenberg var í eigu þeirra Kára Sturlusonar og Ólafs Arnar Ólafssonar um fimm mánaða skeið, frá febrúar fram í október í fyrra. Í umfjöllunum um sölu staðarins á sínum tíma var hún sett í samhengi við fjármálagjörninga hljómsveitarinnar Sigur Rósar, en Kári hafði annast málefni hljómsveitarinnar í rúmlega áratug.Sjá einnig: Selja Rosenberg eftir fimm mánaða reksturGreint var frá því í september á síðasta ári að 35 milljónir króna hefðu horfið úr miðasölu fyrir tónleikaröð Sigur Rósar í Hörpu. Fyrrnefndur Kári hafði fengið 35 milljóna króna fyrirframgreiðslu af miðasölu tónleikanna hjá forstjóra Hörpu, Svanhildi Konráðsdóttur, sem þó sór af sér alla aðkomu að málinu. Þeim peningum virtist Kári síðan hafa ráðstafað í annað sem var viðburðinum í Hörpu og hljómsveitinni með öllu óviðkomandi. Það var svo í upphafi árs sem Vísir greindi frá því að eigendur skemmtistaðarins Lebowski bar hefðu tekið við rýminu að Klapparstíg, þar sem opnuð var írska kráin The Irishman Pub. Fyrstu árin var Rosenberg við Lækjargötu 2, eða allt til stórbrunans í apríl 2007 þegar sögufrægt hús á horni Lækjargötu og Austurstrætis gjöreyðilagðist. Tæpu ári síðar opnaði Rosenberg á ný við Klapparstíg 27.
Tengdar fréttir Eigendur Lebowski bar opna írskan pöbb með karókíherbergi í stað Rosenberg Einn forsprakkanna segir að um sé að ræða stærsta og flottasta írska bar sem opnaður hefur verið hér á landi. 15. janúar 2018 09:15 Selja Rosenberg eftir fimm mánaða rekstur Ólafur Örn Ólafsson og Kári Sturluson hafa selt veitinga- og tónleikastaðinn Rosenberg við Klapparstíg. 5. október 2017 16:15 Mest lesið Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Viðskipti innlent Bein útsending: Má þetta bara? Viðskipti innlent Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari Viðskipti innlent Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga Viðskipti innlent KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu Viðskipti innlent Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur Viðskipti innlent Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Viðskipti innlent „What do you mean by shit-mix, are you mixing the shit?“ Atvinnulíf Bremsutrix Polestar 2 sannaði sig þegar elgir stukku út á veginn Samstarf 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýn fær fjármálastjóra frá Kviku Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari Fimm nýir stjórnendur í framkvæmdastjórn Daga KEA eignast Ferro Zink hf. að fullu Náðu markmiðinu og seldu rúmar 100 þúsund bækur Bein útsending: Má þetta bara? Engin löndun í bili í Grindavík Þrír nýir stjórnendur hjá Styrkási Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Tæplega þriggja milljarða króna viðsnúningur 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Kvika tók kipp Kaupin á Lyfju krefjast að óbreyttu íhlutunar Samkeppniseftirlitsins „Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Samþykkja tilboð Landsbankans í TM Forstjóraskipti hjá Play Slóð viðskipta sakbornings tengist World Class-veldinu Ríkiskaup lögð niður og verkefnin flutt til Fjársýslunnar Ráðinn nýr hagfræðingur ÖBÍ Ríflega helmingur vill ekki skipta við Rapyd Múlakaffi opnar dyrnar í Sjálandi Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði Í skýjunum með 111 milljarða króna útboðið Fékk greiddar um tíu milljónir í viðbótarlaun Miðaldra reka lestina í framtalsskilum Gjaldþrot N4 nam 89 milljónum króna Sigríður Lovísa hlaut flest atkvæði í stjórnarkjöri VR Hlutfallslega flestar leiguíbúðir á Suðurnesjum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálakerfið standi traustum fótum Sjá meira
Eigendur Lebowski bar opna írskan pöbb með karókíherbergi í stað Rosenberg Einn forsprakkanna segir að um sé að ræða stærsta og flottasta írska bar sem opnaður hefur verið hér á landi. 15. janúar 2018 09:15
Selja Rosenberg eftir fimm mánaða rekstur Ólafur Örn Ólafsson og Kári Sturluson hafa selt veitinga- og tónleikastaðinn Rosenberg við Klapparstíg. 5. október 2017 16:15