Enski boltinn

Fellaini er núna alveg óþekkjanlegur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marouane Fellaini.
Marouane Fellaini. Vísir/Getty
Manchester United miðjumaðurinn Marouane Fellaini tók stóra ákvörðun í tilefni af 31 árs afmælisdegi sínum.

Marouane Fellaini hefur ekki farið framhjá neinum inn á fótboltavellinum enda boðið upp á afar áberandi og mjög myndarlega hárgreiðslu í mörg ár.

Nú fékk hárið hans hinsvegar að fjúka og það er óhætt að segja að Fellaini sé núna hreinlega óþekkjanlegur eins og sjá má hér fyrir neðan.

 
 
 
View this post on Instagram
New year, new look #birthdaytomorrow @mitchells_coiffure

A post shared by Marouane Fellaini (@fellaini) on Nov 14, 2018 at 3:00am PST

Marouane Fellaini birti þrjár myndir á Instagram síðu sinni og skrifaði undir: „Nýtt ár og nýtt útlit“

Vincent Kompany, félagi hans í belgíska landsliðinu, grínaðist undir myndinni og sagði að Fellaini hefði örugglega breytt myndinum í Photoshop því að þetta gæti ekki verið satt. 

Marouane Fellaini hefur spilað  með United frá árinu 2013 en hefur meira komið inn af bekknum hjá Jose Mourinho að undanförnu. Hann skrifaði undir nýjan samning í sumar sem nær til ársins 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×