Körfubolti

LeBron fór á kostum í nótt | Sjáðu helstu tilþrifin

Anton Ingi Leifsson skrifar
LeBron fagnar í nótt.
LeBron fagnar í nótt. vísir/getty
LeBron James fór á kostum er LA Lakers vann níu stiga sigur á Portland, 126-117, en ellefu leikir fru fram í NBA-deildinni í nótt.

Mikið var skorað í borg englanna í nótt en staðan í hálfleik var 59-55, Lakers í vil. Lítið um varnir og LeBron og félagar skiluðu sigrinum í hús eftir jafnan og spennandi síðari hálfleik.

Einu sinni sem oftar var það LeBron James sem var í sérflokki hjá Lakers. Hann gerði 44 stig, tók tíu fráköst og gaf níu stoðsendingar. Damian Lillard var öflugur í liði Portland og skoraði 31 stig.

Lakers hefur byrjað tímabilið ágætlega en liðið er með átta sigra í fyrstu fjórtán leikjunum. Portland hafði hins vegar fyrir leikinn í kvöld farið vel af stað en þeir eru með tíu sigra í fyrstu fjórtán leikjum sínum.

Öll úrslit næturinnar:

Philadelphia - Orlando 106-111

Cleveland - Washington 95-119

Chicago - Boston 82-111

Miami - Brooklyn 120-107

Detroit - Toronto 106-104

Memphis - Milwaukee 116-113

New Orleans - Minnesota 100-107

New York - Oklahoma 103-128

Utah - Dallas 68-118

San Antonio - Phoenix 96-116

Portland - LA Lakers 117-127

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×