Handbolti

Tólf íslensk mörk í jafntefli

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ólafur Bjarki Ragnarsson.
Ólafur Bjarki Ragnarsson. Vísir
Íslendingaliðin Westwien og Schwaz skildu jöfn í austurrísku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Viggó Kristjánsson gerði fjögur mörk fyrir Westwien og Ólafur Bjarki Ragnarsosn og Guðmundur Hólmar Helgason settu þrjú mörk hvor í 24-24 jafntefli.

Heimamenn í Westwien höfðu verið 15-10 yfir í hálfleik en misstu leikinn niður í jafntefli í seinni hálfleik.

Ísak Rafnsson skoraði tvö mörk í liði Schwaz.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×