Körfubolti

Hópurinn sem mætir Slóvakíu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hildur Björg í leik með landsliðinu.
Hildur Björg í leik með landsliðinu. vísir/ernir
Ívar Ásgrímsson, landsliðsþjálfari kvenna í körfubolta, hefur valið þær 12 sem munu spila leik Íslands og Slóvakíu í Laugardalshöll á morgun.

Leikurinn er sá næst síðasti í undankeppni EuroBasket 2019 en Ísland er nú þegar fallið úr leik í keppninni.

Ragnheiður Benónísdóttir, Sigrún Björg Ólafsdóttir og Sóllilja Bjarnadóttir eru ekki í hópnum úr 15 manna æfingahóp landsliðsins. Þær eru þó enn inni í æfingahópnum og gætu komið inn fyrir seinni leikinn gegn Bosníu á miðvikudag.

Lið Íslands gegn Slóvakíu:

Berglind Gunnarsdóttir

Birna Valgerður Benónýsdóttir

Bríet Sif Hinriksdóttir

Embla Kristínardóttir

Guðbjörg Sverrisdóttir

Gunnhildur Gunnarsdóttir

Hallveig Jónsdóttir

Helena Sverrisdóttir

Hildur Björg Kjartansdóttir

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir

Unnur Tara Jónsdóttir

Þóra Kristín Jónsdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×