Körfubolti

Butler: Miklu skemmtilegra að spila með Philadelphiu

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Butler var stigahæstur hjá Philadelphiu í nótt
Butler var stigahæstur hjá Philadelphiu í nótt Vísir/Getty
Jimmy Butler segir það vera miklu skemmtilegra að spila með Philadelphia 76ers, en honum var skipt þangað frá Minnesota Timberwolves á dögunum.



Butler lék sinn fyrsta heimaleik fyrir Philadelphiu í nótt gegn Utah Jazz og leiddi Butler lið sitt til sigurs en hann varð stigahæstur hjá Philadelphiu með 28 stig. Philadelphia vann leikinn 113-107.



„Það er svo gaman að vinna. Það er miklu skemmtilegra að spila með þessum mönnum,“ sagði Butler í viðtali eftir leik.



„Þegar þú setur saman fimm mjög góða körfuboltamenn saman, er verkefnið auðvelt, því boltinn mun verða á hreyfingu. Menn munu skjóta úr opnum skotum, senda á opna menn. Körfubolti er svo auðveldur. Með þessum mönnum, er þetta mjög auðvelt.“



Butler fór ekki þegjandi og hljóðarlaust frá Minnesota, en hann vildi fara þaðan í sumar. Mikið fjaðrafok var í kringum Butler allt þangað til að honum var loksins skipt til Philadelphiu á dögunum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×