Handbolti

Kristianstad tapaði stórt í Ungverjalandi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ólafur setti fjögur í dag
Ólafur setti fjögur í dag Vísir/Getty
Ólafur Guðmundsson og Arnar Freyr Arnarsson voru í stóru hlutverki í liði Kristianstad þegar sænsku meistararnir heimsóttu ungverska stórveldið Veszprém í Meistaradeild Evrópu í dag.

Sænska liðið mátti sín lítils gegn Veszprém að þessu sinni en leiknum lauk með níu marka sigri Ungverjanna, 36-27, eftir að staðan í leikhléi var 20-14.

Ólafur og Arnar gerðu báðir fjögur mörk í leiknum en Valter Chrintz var markahæstur Svíanna með átta mörk. Norðmaðurinn Kent Robin Tönnesen fór mikinn í liði Veszprém og skoraði átta mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×