Handbolti

Óðinn Þór markahæstur í Serbíu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Óðinn lék með FH á síðustu leiktíð
Óðinn lék með FH á síðustu leiktíð vísir/vilhelm
Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í danska liðinu GOG standa vel að vígi eftir fyrri leik sinn gegn serbneska liðinu Vojvodina í undankeppni EHF-bikarsins.

Óðinn Þór var markahæstur í fimm marka sigri GOG í Serbíu í dag en hægri hornamaðurinn knái skoraði átta mörk þegar GOG vann 27-32.

Niclas Kirkelokke skoraði sömuleiðis átta mörk en GOG leiddi með einu marki í leikhléi, 12-13.

Óðinn og félagar eru því í góðri stöðu fyrir seinni leikinn sem fram fer í Danmörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×