Körfubolti

Tryggvi meðal bestu manna Obradoiro í tapi

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Tryggvi í baráttunni
Tryggvi í baráttunni Vísir/Getty
Tryggvi Hlinason átti flottan leik í liði Obradoiro í tapi gegn Murcia í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.



Murcia vann leikinn nokkuð örugglega 80-58 en Tryggvi var meðal bestu manna hjá Obradoiro.



Tryggvi skoraði átta stig og tók tíu fráköst en hann var í byrjunarliði Obradoiro.



Obradoiro er í 14. sæti af átján liðum í spænsku úrvalsdeildinni en þeir hafa unnið þrjá leiki en tapað sex það sem af er tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×