Körfubolti

Finnur Freyr: KR mun landa þeim sjötta í vor

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Finnur Freyr Stefánsson færði sig um set til Vals í sumar
Finnur Freyr Stefánsson færði sig um set til Vals í sumar Mynd/Valur
Körfuboltaþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson, fyrrverandi þjálfari KR, þjálfar nú yngri flokka hjá Val en er sannfærður um að Íslandsmeistaratitillinn endi enn einu sinni í Vesturbænum.

Finnur Freyr var til viðtals í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem þetta kom fram.

Hann kvaddi KR með fimmta Íslandsmeistaratitlinum í röð síðastliðið vor. Hann kveðst sannfærður um að það hafi verið rétt ákvörðun að fara frá KR og unir hag sínum vel á Hlíðarenda.

„Maður verður víst að vinna og eiga í sig og á. Þetta er náttúrulega vinnan mín. Mér líður mjög vel hérna í Val og er að koma inn í nýtt umhverfi,“ segir Finnur Freyr.

Innslagið í heild sinni má sjá neðst í fréttinni en þar talar Finnur meðal annars um stöðuna á KR í dag.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×