Foreldrar eru bestu lestrarfyrirmyndirnar Sólveig Gísladóttir skrifar 19. nóvember 2018 17:45 Ævar vísindamaður var kynnir á opnunarhátíð Bókabröltsins. Hann sagði gestum meðal annars frá tilurð og markmiðum verkefnisins.
Bókabrölt í Breiðholti er skemmtilegt verkefni sem öll foreldrafélög grunnskólanna í Breiðholti standa að. Fimm hillur eru settar upp í hverfinu þar sem fólk getur komið með notaðar bækur og tekið aðrar í staðinn. Opnunarhátíð verkefnisins var haldin í Mjódd á fimmtudaginn síðasta. Frábært samstarf allra fimm foreldrafélaganna í grunnskólum Breiðholts þykir einstakt, en skólarnir eru Seljaskóli, Hólabrekkuskóli, Ölduselsskóli, Fellaskóli og Breiðholtsskóli. Verkefnið Bókabrölt í Breiðholti er eitt af fjölmörgum verkefnum sem samstarfið hefur getið af sér. „Hugmyndin að Bókabröltinu vaknaði fyrir um ári en fyrirmyndir að svipuðum verkefnum má finna víða erlendis,“ segir Dröfn Vilhjálmsdóttir, bókasafns- og upplýsingafræðingur í Seljaskóla, sem kemur þó að verkefninu fyrst og fremst sem foreldri. „Um leið og Bókabrölt í Breiðholti mun setja skemmtilegan svip á hverfið stuðlar verkefnið að því að efla lestraráhuga og lestrarfærni meðal fullorðinna og barna með það að leiðarljósi að lestrarfyrirmyndir heima fyrir hafa mikil áhrif á bókaáhuga barna,“ segir Dröfn. Verkefnið gengur út á að koma upp fimm hillum á fimm stöðum í hverfinu. Í hillunum verða notaðar bækur sem fólki er frjálst að taka með sér og það hvatt til þess að koma með aðrar notaðar í staðinn. „Við fengum fimm hillur gefins og ein fór í hvern skóla. Þar voru nemendur fengnir til að mála og skreyta hillurnar. Ein hilla verður síðan í hverju skólahverfi, á fjölförnum stað.“ Dröfn Vilhjálmsdóttir vonast til að bókabröltið muni mælast vel fyrir.Opnunarhátíð á fimmtudag Allar fallega skreyttu hillurnar fimm voru á opnunarhátíð átaksins í Mjódd á fimmtudag en þar var Ævar vísindamaður kynnir. „Þetta verkefni rímar mjög vel við lestrarátak hans, en það síðasta verður haldið í janúar. Þá munu foreldrar einnig geta skilað inn lestrarmiðum eins og börnin hafa gert,“ lýsir Dröfn. Eftir hátíðina var farið með allar hillurnar á sína staði, í ÍR-heimilið, Seljakjör, Hólagarð, Mjódd og Breiðholtslaug. Hvert foreldrafélag mun fóstra eina hillu og sjá til þess að henni sé vel við haldið.Bókamerki og Facebook-síða Þeir sem vilja geta fylgst með hillunum á Facebook-síðunni Bókabrölt í Breiðholti. Þar verða reglulega birtar myndir af hillunum. „Þannig getur fólk séð spennandi bók sem það langar í, farið á staðinn og kippt henni með sér heim.“ Foreldrafélögin hafa látið hanna fyrir sig lógó og útbúa bókamerki sem dreift var til viðstaddra á fimmtudaginn. Bókamerkin verða svo aðgengileg í bókahillunum meðan birgðir endast.Nemendur grunnskólanna í Breiðholti sáu um að skreyta bókahillurnar fimm.Bækur á ýmsum tungumálum Samfélagið í Breiðholti er líflegt og fjölþjóðlegt. „Við höfum reynt að koma upplýsingum til fólks af ólíku þjóðerni í hverfinu í gegnum til dæmis Pólska skólann og ýmis sendiráð. Bókabröltið er nefnilega frábær vettvangur fyrir fólk frá hinum ýmsu löndum til að deila bókum á sínu tungumáli og fá aðrar.“Vonandi komið til að vera Dröfn segist viss um að bókabröltið muni hafa margar jákvæðar afleiðingar. „Markmiðið er að gera bækur sýnilegar og efla foreldra og aðra fullorðna í hverfinu sem lestrarfyrirmyndir en ég get líka ímyndað mér að bókahillurnar verði góður staður til að hitta fólk og spjalla við það hvort sem er um bækur eða daginn og veginn.“ Hún vonast til að átakið muni mælast vel fyrir. „Við munum meta verkefnið eftir eitt ár og sjá hvort tilefni sé til að fjölga hillum. Við vonum að þetta sé komið til að vera.“
Menning Mest lesið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 Lífið Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Lífið Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Lífið „Blessunarlega ekkert stoppaður af foreldrum mínum“ Tíska og hönnun Hafa ekki sést saman í sjö vikur Lífið Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Lífið Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Lífið „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Lífið Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Horfir vonandi niður af himnum og sér börnin blómstra á bóndabænum Smekklegt einbýli í Fossvogi á 230 milljónir Af vængjum fram: „Krakkar, ekki gera þetta heima“ Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku Föruneyti Pingsins: Enn barist í Baldurs Gate Forseti Hæstaréttar og Kristján Loftsson í gámapartýi Óvænt að „gáfumannarapparar“ herji stríð af þessu tagi Matti og tengdó selja 220 milljóna króna einbýlishús Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið Endurtekið hvött til að hvíla bláa litinn Gleðitár hjá hundrað konum á Geysi Af vængjum fram: Búlgörsku mafíunni að mæta yrði Ásdísi dömpað Sjá meira