Fótbolti

Svava Rós ein af þremur bestu í Noregi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Svava Rós Guðmundsdóttir
Svava Rós Guðmundsdóttir fréttablaðið
Landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir er ein af þremur sem tilnefndar eru sem besti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Kvinnefotballmagasinet stendur fyrir tilnefningunni en ásamt Svövu eru Guro Reitin hjá Lilleström og Stine Hövland hjá Sandviken.

Svava Rós gekk til liðs við Röa frá Breiðabliki fyrir þetta tímabil og hefur átt frábært tímabil í Noregi.

Hún spilar mest sem framherji fyrir Röa og er búin að skora 14 mörk í 20 leikjum.

„Hún hefur verið mjög stöðug í markaskorun á tímabilinu, er alltaf að leita uppi marktækifærin og helur varnarmönnum vel á tánum,“ segir meðal annars um Svövu í tilnefningunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×