Innlent

Einn fluttur á slysadeild eftir bílveltu á Hringbraut

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ekki er talið að viðkomandi sé alvarlega slasaður.
Ekki er talið að viðkomandi sé alvarlega slasaður. Vísir/Sigurjón
Einn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar eftir þriggja bíla árekstur á Hringbraut sem endaði með því að einn bíll valt.

Ekki er talið að viðkomandi sé alvarlega slasaður.

Útkall barst vegna árekstursins upp úr klukkan þrjú í dag. Samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliði voru lýsingar á vettvangi ekki fallegar í upphafi þannig að tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn á samt dælubíl.

Þrír bílar voru í árekstrinum og alls sjö farþegar. Þar af var einn fluttur á sjúkrahús, sem fyrr segir.

Ekki er vitað um tildrög slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×