Golf

Ólafía spilaði hring sjö á pari

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafía spilaði fínt golf í dag.
Ólafía spilaði fínt golf í dag. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, spilaði sjöunda hringinn af átta á síðasta úrtökumótinu fyrir LPGA mótaröðina á parinu.

Spilaðir eru átta hringir á innan við tveimur vikum en Ólafía hefur verið í miklum vandræðum. Hún var fyrir daginn í dag á tuttugu yfir pari.

Ólafía lék þokkalega stöðugt golf í dag. Þrír fuglar, tólf pör og þrír skollar litu dagsins ljós og Ólafía kom því í mark á parinu í dag.

Hún er þó enn á tuttugu yfir pari og þegar þetta er skrifað er hún í 90. sætinu, þrettán höggum frá niðurskurðinum er einn hringur er eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×