Körfubolti

Elvar og Jakob í sigurliðum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Elvar Már í háskólaboltanum þar sem hann lék áður.
Elvar Már í háskólaboltanum þar sem hann lék áður. vísir/getty
Elvar Friðriksson var í sigurliði Denain sem vann sautján stiga sigur á Caen, 81-64, í frönsku B-deildinni í körfubolta í kvöld.

Elvar spilaði í rúmar fjórtán mínútur og var með sex stoðsendingar fyrir Denain. Að auki tók hann eitt frákast en Denain er með tvo sigra í fyrstu fjórum leikjunum.

Jakob Sigurðarson skoraði sex stig í öruggum sigri Borås á Uppsala, 113-84, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Að auki tók Jakob tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.

Borås er á toppnum í sænsku úrvalsdeildinni eftir tíu leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×