Enski boltinn

Norwich á toppinn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Pukki skoraði tvö mörk
Pukki skoraði tvö mörk vísir/getty
Norwich tók toppsæti ensku Championship deildarinnar af Sheffield United með sigri á nágrönnum þeirra í Sheffield Wednesday.

Finninn Teemu Pukki skoraði tvisvar í 4-0 sigrinum á Wednesday, Emiliano Buendia og Dennis Srbeny gerðu hin mörkin. Öll mörkin fjögur komu í seinni hálfleik.

Sheffield United tapaði á útivelli fyrir Nottingham Forest þar sem Lewis Grabban gerði eina mark leiksins.

Reading náði í mikilvæg stig í fallbaráttunni með 3-2 sigri á Bristol City.

Jón Daði Böðvarsson var ekki í leikmannahóp Reading en hann hefur verið að glíma við meiðsli að undan förnu.

Blackburn - QPR 1-0

Brentford - Millwall 2-0

Derby - Birmingham 3-1

Hull City - WBA 1-0

Ipswich - Preston North End 1-1

Nottingham Forest - Sheffield United 1-0

Reading - Bristol City 3-2

Rotherham - Swansea 2-1

Sheffield Wednesday - Norwich 0-4

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×