Fótbolti

Ljónin með öflugan sigur í Ungverjalandi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Öflugur sigur hjá Ljónunum í Ungverjalandi.
Öflugur sigur hjá Ljónunum í Ungverjalandi. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen náði í sterkan útisigur í Ungverjalandi er þeir höfðu betur gegn Veszprém, 29-28.

Ljónin voru 15-12 yfir í hálfleik og eftir nokkuð jafnar lokamínútur hafði þýska liðið betur með minnsta mun.

Guðjón Valur Sigurðsson var hvíldur í kvöld og komst ekki á blað. Alexander Petersson skoraði ekki úr þeim tveimur skotum sem hann tók.

Rhein-Neckar Löwen er því komið með átta stig í A-riðlinum. Barcelona og Vive Kielce eru einnig með átta stig en Vardar er á toppnum með tíu. Veszprém er með sex.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×