Handbolti

Kiel vann stórsigur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Alfreð stýrði sínum mönnum til sigurs í dag
Alfreð stýrði sínum mönnum til sigurs í dag Vísir/Getty
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel unnu átta marka sigur á GWD Minden í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag.

Gestirnir í Kiel náðu fljótlega upp góðu forskoti en heimamenn komu til baka og jöfnuðu leikinn seint í fyrri hálfleik og var staðan 17-19 í hálfleik.

Staðan var áfram nokkuð jöfn framan af í seinni hálfleik og var það ekki fyrr en á síðustu tíu mínútunum sem Kiel náði að stíga á bensíngjöfina og slíta sig frá Minden.

Lokatölur urðu 29-37 eftir 3-9 kafla Kiel síðustu mínúturnar.

Gísli Þorgeir Kristjánsson var í leikmannahópi Kiel en kom lítið við sögu miðað við tölfræði leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×