Handbolti

Stefán Rafn og félagar töpuðu gegn PSG

Anton Ingi Leifsson skrifar
Stefán í leik með ungverska liðinu.
Stefán í leik með ungverska liðinu. mynd/szeged
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði tvö mörk er Pick Szeged tapaði 33-31 fyrir PSG í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.

Leikið var í Frakklandi og var franska liðið einu marki yfir í hálfeik 15-14. Munurinn endaði svo í tveimur mörkum eftir jafnan og spennandi síðari hálfleik.

Stefán Rafn skoraði úr báðum skotum sínum í átt að marki PSG en markahæstur PSG var Norðmaðurinn Sander Sagosen. Hann skoraði sjö mörk úr sjö skotum.

PSG er á toppi B-riðilsins með tólf stig, fullt hús stiga eftir sex leiki, en Szeged er í öðru sætinu með tíu stig. Þeir höfðu unnið fyrstu fimm leiki sína í riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×