Skórnir á hilluna hjá Rafael van der Vaart Arnar Geir Halldórsson skrifar 6. nóvember 2018 08:00 Rafael van der Vaart komst nálægt því að lyfta Heimsmeistaratitilinum 2010.
Hollenski knattspyrnumaðurinn Rafael van der Vaart, hefur ákveðið að láta gott heita á knattspyrnuvellinum, 35 ára að aldri. Hann hefur undanfarin ár leikið í Danmörku, fyrst með Midtjylland og nú síðast Esbjerg en þessi fyrrum leikmaður Ajax, Real Madrid og Tottenham varði síðustu árunum á knattspyrnuferli sínum í að fylgja unnustu sinni á framabrautinni og er það meginástæðan fyrir því að hann spilaði í dönsku úrvalsdeildinni Unnusta van der Vaart er hollenska handboltastjarnan Estavana Polman sem hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá Esbjerg og hollenska landsliðinu á undanförnum árum. Rafael van der Vaart var aðeins unglingur þegar hann var kominn í stórt hlutverk hjá Ajax og var hann talinn einn allra efnilegasti leikmaður Evrópu á þeim tíma. Erfið hnémeiðsli snemma á ferlinum áttu hins vegar eftir hafa mikil áhrif á feril kappans. Þó ferill hans hafi aldrei náð þeim hæðum sem búist var við lék van der Vaart um tíma með Real Madrid og Tottenham þó hann hafi lengstum dvalið hjá Hamburg SV í Þýskalandi. Van der Vaart varð tvívegis Hollandsmeistari með Ajax í upphafi aldar en það voru hans einu landsmeistaratitlar. Þá var hann hluti af hollenska landsliðinu sem hafnaði í 2.sæti á HM í Suður-Afríku 2010. Hann er fjórði leikahæsti leikmaðurinn í sögu hollenska landsliðsins með 109 landsleiki en aðeins hafa þeir Frank de Boer, Edwin van der Sar og Wesley Sneijder leikið fleiri leiki fyrir Holland. If there is one moment to use My Way, this is it. It wasn't an easy decision to say goodbye to the game I love the most. But words can't express how grateful I am for those 18 wonderful years of professional football. Thank you all! pic.twitter.com/SDpmb5oSUV— Rafael van der Vaart (@rafvdvaart) November 5, 2018
Fótbolti Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Fleiri fréttir Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Sjá meira