Handbolti

Stefán Rafn og félagar með fullt hús

Anton Ingi Leifsson skrifar
Stefán er að gera gott mót í Ungverjalandi.
Stefán er að gera gott mót í Ungverjalandi. mynd/pick szeged
Stefán Rafn Sigurmannsson og félagar í Pick Szeged lentu í engum vandræðum með Vecses í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Stefán og félagar náðu fljótlega góðri forystu í leiknum en þeir voru þrettán mörkum yfir í hálfeik, 23-10.

Þeir slökuðu ekkert á klónni í síðari hálfeik og bættu í ef eitthvað var. Þeir fengu einungis átta mörk á sig í síðari hálfleik og unnu að lokum með 19 marka mun, 37-18.

Szeged er á toppi ungversku deildarinnar með fullt hús stiga eftir níu leiki í deildinni. Þeir eru þremur stigum á undan æsta liði, Tatabánya.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×