Körfubolti

Jakob frábær í sigri Borås

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jakob í landsleik.
Jakob í landsleik. vísir/ernir
Jakob Sigurðarson spilaði frábærlega er Borås rúllaði yfir Umeå í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Lokatölur 113-82 sigur Jakobs og félaga.

Borås byrjaði af miklum krafti og átti auðvelt með að hitta en þeir skoruðu 60 stig í fyrri hálfleik. Staðan að honum loknum, 60-41.

Jakob og félagar héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik en sigurinn var aldrei í hættu. Munurinn að endingu 31 stig.

Jakob var frábær í leiknum Hann skoraði 20 stig og var þriðji stigahæsti leikmaður Borås. Einnig tók KR-ingurinn eitt frákast og gaf tvær stoðsendingar.

Borås er í öðru sæti deildarinnar með sextán sig eftir ellefu leiki; átta sigrar og þrír tapleikir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×