Mkhitaryan bjargaði stigi fyrir Arsenal gegn nýliðunum

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Mkhitaryan bjargaði stigi á Emirates í dag
Mkhitaryan bjargaði stigi á Emirates í dag vísir/getty
Arsenal náði í jafntefli gegn nýliðum Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag.



Nýliðarnir byrjuðu af krafti í dag og komust yfir strax á 13. mínútu leiksins. Mark Wolves skoraði Ivan Cavaleiro.



Það virtist allt stefna í að Wolves næðu í stigin þrjú á Emirates vellinum í dag, en Henrikh Mkhitaryan var á öðru máli og jafnaði hann leikinn á 86. mínútu.



Arsenal er enn í fimmta sæti deildarinnar, með 24 stig en liðið er þremur stigum á eftir erkifjendum sínum úr Lundúnarborg, Tottenham.



Wolves siglir nokkuð lygnan sjó um miðbik deildarinnar og eru í 11. sæti með 16 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira