Körfubolti

Ívar: Frábærir í tveimur leikhlutum, hræðilegir í hinum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ívar messar yfir sínum mönnum í kvöld.
Ívar messar yfir sínum mönnum í kvöld. vísir/bara
Annar og fjórði leikhluti skiluðu sigrinum að mati Ívars Ásgrímssonar, þjálfara Hauka, en Haukarnir höfðu betur gegn Skallagrím í Dominos-deildinni í kvöld.

„Við vorum mjög góðir í öðrum, mjög góðir í fjórða, en skelfilegir í fyrsta og þriðja. Það var bara þannig.“

„Þetta voru bara tveir leikhlutar hjá okkur af fjórum.“

Hvað var Ívar ánægðastur með í leiknum? „Sigurinn er ég alveg gríðarlega sáttur við.“

„Mér fannst við vera mjög góðir í þessum tveimur leikhlutum. Við erum í smá vandræðum út af því að það vantar Kristján, en Hjálmar kom sterkur inn. Vörnin í tveimur leikhlutum frábær en hræðileg í hinum tveimur.“

„Hjálmar er bara að sýna gæði, ég er alveg gríðarlega sáttur,“ sagði Ívar Ásgrímsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×