Enski boltinn

Mourinho fær að versla fyrir 100 milljónir punda í janúar

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sá fær að versla í janúar
Sá fær að versla í janúar vísir/getty
Manchester United hyggst nýta sér janúargluggann til að styrkja lið sitt en The Guardian segir frá því að Jose Mourinho muni fá að verja meira en 100 milljónum punda í leikmannakaup þegar opnað verður fyrir félagaskipti í janúar.

Stuðningsmenn félagsins hafa gagnrýnt stjórnarmenn harkalega á undanförnum vikum en Mourinho hefur sjálfur kvartað yfir því að hafa ekki fengið fjármagn til að versla þá leikmenn sem hann vildi fá síðasta sumar.

Beðið var eftir því að liðið myndi festa kaup á miðverði allt síðasta sumar og voru Harry Maguire, Jerome Boateng, Raphael Varane og Toby Alderweireld helst í umræðunni en allt kom fyrir ekki og hefur varnarleikur liðsins ekki verið til útflutnings á yfirstandandi leiktíð.

Samkvæmt sömu heimildum hefur Mourinho líka hug á að bæta við sig sóknarmanni en aðalframherji liðsins, Romelu Lukaku, hefur verið heillum horfinn það sem af er leiktíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×