Körfubolti

Thompson tók þriggja stiga metið af Curry

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Klay og Curry fagna í nótt.
Klay og Curry fagna í nótt. vísir/getty
Það hefur verið beðið eftir því að Klay Thompson, leikmaður Golden State Warriors, færi í gang og hann gerði það heldur betur í nótt.

Thompson skoraði 52 stig í sigri Warriors á Chicago Bulls. Það sem meira er að þá setti hann niður fjórtán þriggja stiga körfur. Það er met í NBA-deildinni. Hann þurfti aðeins 26 mínútur og 24 skot til þess að ná þessu meti. Bilun.

Liðsfélagi hans, Stephen Curry, átti gamla metið sem var þrettán þriggja stiga körfur og sett í nóvember árið 2016.

„Ég var á nálum því í hvert skipti sem met er í sjónmáli þá verður maður stressaður. Ég er svo heppinn að spila með þessum gaurum. Þetta var kvöld sem ég gleymi aldrei,“ sagði Thompson sem jafnaði metið í þriðja leikhluta og bætti það svo er fimm mínútur voru eftir af leiknum.





„Er við fórum út í seinni hálfleikinn þá sagði Steph mér að taka metið. Það sýnir hversu óeigingjarn hann er,“ sagði Klay en Curry óskaði honum einnig til hamingju á Instagram.

Curry á metið yfir flestar þriggja stiga körfur á einu tímabili en hann skoraði 402 slíkar leiktíðina 2015-16. Við skulum svo ekki útiloka að hann taki þetta met aftur af Thompson fyrir jól.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×