Enski boltinn

Neville um Martial: Hann skilur ekki leikinn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Anthony Martial hefur verið inn og út úr liði United
Anthony Martial hefur verið inn og út úr liði United Vísir/Getty
Enginn leikmaður Manchester United hefur ruglað Gary Neville eins mikið í ríminu og Anthony Martial. Þetta sagði fyrrum United-maðurinn á Sky Sports.

„Ég hef horft á fimm síðustu leiki United og þar af horfði ég á þrjá úr stúkunni á Old Trafford. Þar hafði ég frábært útsýni yfir Martial, ég fylgdist vel með honum og reyndi að skoða hvernig ég myndi spila gegn honum sem hægri bakvörður,“ sagði Neville í grein sinni.

„Oftast getur þú séð leikmann og ákveðið hvort þér líkar við hann eða ekki. Ég get ekki ákveðið mig með Martial. Stundum finnst mér hann frábær, stundum efast ég um að hann sé leikmaður fyrir Manchester United.“

Martial er enn ungur, hann er fæddur í desember 1995. Hann hefur verið hjá United síðan 2015 og spilað 147 leiki fyrir félagið.

„Hvað gerir hann vel? Hann klárar færin sín og lætur erfið færi virðast auðveld. Hann er kraftmikill, hann er hraður og ógnandi.“

„Hvað þarf að bæta? Hvað hann gerir án boltans gerir mig brjálaðan. Þá er ég ekki að tala um varnarvinnuna, gleymið henni. Bestu leikmennirnir sem ég mætti í bakverðinum voru þeir sem voru betri án bolta en með bolta. Þeir komust fyrir aftan mig með frábærum hlaupum.“

„Martial nær því ekki. Hann veit ekki hvar hann á að vera og hvenær hann á að hlaupa. Hann bíður og bíður og hangir úti á kantinum. Hann skilur ekki leikinn.“

Neville komst að lokum að þeirri niðurstöðu að Martial þarf að laga hlaupin sín, hlaupa meira, og United þarf að sýna honum þolinmæði.


Tengdar fréttir

Martial ætlar að hafna PSG og Juve

Anthony Martial ætlar að hafna tilboðum frá Juventus, Paris Saint-Germain og Bayern München og skrifa undir nýjan samning við Manchester United. Þetta hefur ESPN eftir heimildum sínum.

Martial hafnaði tilboði United

Nýjustu fréttir af samningaviðræðum Anthony Martial og Manchester United eru þær að Martial á að hafa hafnað síðasta tilboði United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×