Enski boltinn

Alli framlengir við Tottenham til 2024

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Dele Alli verður í herbúðum Tottenham næstu sex árin eftir að hafa skrifað undir nýjan samning við félagið.

Hinn 22 ára Alli kom til Tottenham frá MK Dons árið 2015 og kostaði þá fimm milljónir punda. Síðan þá hefur hann skorað 48 mörk í 153 leikjum.



„Ég hef notið tímans hjá Spurs til þessa og er mjög spenntur fyrir því hvað framtíðin ber í skauti sér,“ sagði Alli á Instagram.



Alli hefur verið að glíma við meiðsli á tímabilinu og aðeins tekið þátt í sex leikjum í úrvalsdeildinni til þessa.



Hann kom inn á í tapinu fyrir Manchester City í gær, það var hans fyrsti leikur síðan í september.

 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×