Körfubolti

Góður leikur Jakobs í naumum sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jakob var öflugur í kvöld.
Jakob var öflugur í kvöld. vísir/ernir
Borås er áfram í öðru sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta eftir þriggja stiga sigur, 86-83, á Nåssjö á útivelli í kvöld.

Eftir að hafa verið einu stigi undir eftir fyrsta leikhlutann leiddu Borås með sex stigum í hálfleik, 41-35.

Borås var einnig með gott forskot fyrir fjórða og síðasta leikhlutann en Nåssjö sótti hart að Borås sem náði þó að innbyrða góðan sigur, 86-83.

Jakob Sigurðarson spilai í rúmar tuttugu mínútur fyrir Borås. Hann skoraði níu stig, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu fyrir Borås sem er í öðru sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×