Enski boltinn

Pogba grínast með vítið sitt á Instagram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Pogba hleypur að boltanum á sunnudaginn.
Pogba hleypur að boltanum á sunnudaginn. vísir/getty
Vítaspyrna Paul Pogba gegn Everton vakti mikla athygli um helgina en aðhlaup hans að boltanum var einkar athyglisvert.

Pogba hefur gert það að listgrein sinni að vera lengi að hlaupa að knettinum í vítaspyrnum en um helgina sló hann nýtt met.

Hann tók 26 skref í átt að boltanum í vítaspyrnunni gegn Everton um helgina og hafa margir vakið athygli á þessu og gagnrýnt Pogba.

Vítaspyrnan klúðraðist en Pogba tók sjálfur frákastið og kláraði í autt netið þar sem Jordan Pickford, markvörður Everton, lá eftir.

Pogba sjálfur hefur greinilega mikinn húmor fyrir þessu og birti hann myndband af sér slá á létta strengi. Myndbandið má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×