Enski boltinn

Grannaslagur í átta liða úrslitunum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Son-Heung mi fagnar öðru marki sínu í kvöld.
Son-Heung mi fagnar öðru marki sínu í kvöld. vísir/getty
Búið er að draga í átta liða úrslit enska deildarbikarsins þrátt fyrir að ekki sé búið að spila alla leikina í 16-liða úrslitunum.

Það verður grannaslagur er Arsenal og Totenham mætast en Middlesbrough sem sló út Palace í kvöld fær Burton í heimsókn.

Chelsea kláraði Derby með herkjum í kvöld en þeir fá Bournemouth í heimsókn en mikið fjör var á Brúnni í kvöld er Frank Lampard snéri aftur.

Leicester eða Southampton spila svo við Manchester City eða Fulham en þessar viðureignir eiga eftir að fara fram.

Átta liða úrslitin verða spiluð í kringum sautjánda desember.

8-liða úrslitin:

Arsenal - Tottenham

Leicester eða Southampton - Manchester City eða Fulham

Middlesbrough - Burton

Chelsea - Bournemouth


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×