Innlent

Ók á þrjú hross á Eyrarbakkavegi

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Bifreið var ekið á þrjú hross á Eyrarbakkavegi við Stokkseyrarsel í Árborg, rétt utan við Selfoss nú undir kvöld. Lögregla og sjúkraflutningamenn voru sendir á vettvang en meiðsli ökumanns reyndust ekki alvarleg. Bifreiðin er hins vegar mikið skemmd.

Dýrlæknir var fenginn á vettvang en aflífa þurfti hrossinn og voru slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Árnessýslu kallaðir til aðstoðar við hreinsun.

Eyrarbakkavegi var lokað fyrir umferð á meðan björgunaraðilar unnu á vettvangi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×