Fótbolti

Napoli saxar á forskot Juventus

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Dries Mertens.
Dries Mertens. Vísir/Getty
Napoli náði að minnka forystu Juventus á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta en Juventus gerði jafntefli við Genoa á heimavelli fyrr í dag.

Napoli var í heimsókn hjá Udinese og Fabian Ruiz kom gestunum yfir snemma leiks. Belgíski snillingurinn Dries Mertens gerði svo út um leikinn með marki úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok.

Gestirnir voru þó ekki hættir því Marko Rog náði að bæta við einu marki áður en yfir lauk.

Lokatölur því 0-3 og styrkti Napoli stöðu sína í 2.sæti deildarinnar en næst á eftir þeim kemur Inter með fimm stigum minna en þeir eiga þó leik til góða. Juventus hefur fjögurra stiga forystu á toppnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×