Handbolti

Guðjón Valur og Alexander atkvæðamiklir í sigri á Fuchse Berlin

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Alexander Petterson.
Alexander Petterson. vísir/getty
Alexander Petterson og Guðjón Valur Sigurðsson fóru mikinn þegar Rhein-Neckar Löwen bar sigurorð af Fuchse Berlin í stórleik dagsins í þýska handboltanum.

Alexander var markahæstur ásamt Jannick Kohlbacher með sex mörk og Guðjón Valur kom næstur með fimm mörk úr fimm skotum. Lokatölur 28-25 fyrir Rhein-Neckar Löwen eftir að þeir höfðu leitt leikinn með fjórum mörkum í leikhléi, 15-11.

Bjarki Már Elísson nýtti öll þrjú færin sín í leiknum.

Löwen lyfti sér upp fyrir Fuchse Berlin í töflunni með þessum sigri og sitja nú í 4.sæti á meðan Fuchse Berlin er komið niður í 6.sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×