Fótbolti

Heimir með enn einn sigurinn í Færeyjum

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Heimir búinn að taka yfir færeyskan fótbolta
Heimir búinn að taka yfir færeyskan fótbolta vísir/vilhelm
Lærisveinar Heimis Guðjónssonar í HB heimsóttu B36 í færeysku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en HB er löngu búið að tryggja sér efsta sæti deildarinnar.

Þrátt fyrir það hafa þeir ekkert slakað á og þeir unnu nokkuð öruggan 1-3 sigur í dag þar sem Símun Samuelson, fyrrum leikmaður Keflavíkur, skoraði eitt mark.

HB er nú komið með 70 stig en ekkert lið hefur fengið fleiri stig í sögu deildarkeppninnar í Færeyjum. Gamla metið áttu andstæðingar HB í dag, B36.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×