Körfubolti

Jakob öflugur í bursti

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jakob í íslenska landsliðsbúningnum.
Jakob í íslenska landsliðsbúningnum. vísir/getty
Jakob Sigurðarson skoraði níu stig er Borås rúllaði yfir Köping Stars, 111-75, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Borås byrjaði af miklum krafti og var tíu stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann. Þeir stigu á bensíngjöfina og voru 22 stigum yfir í hálfleik, 55-31.

Sigurinn var aldrei í hættu eftir þetta. Jakob og félagar gjörsamlega keyrðu yfir gestina og unnu að lokum 36 stiga sigur, 111-75.

Jakob skoraði níu stig en öll hans stig komu úr þriggja stiga skotum. Auk þess að skora níu stig, gaf hann þrjár stoðsendingar og tók eitt frákast.

Borås er á toppi deildarinnar með fimm sigra í fyrstu átta leikjunum en Köping er í vandræðum í neðri hluta deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×