Enski boltinn

Gracia: Erum með besta leikmannahópinn

Dagur Lárusson skrifar
Javi Gracia er sáttur.
Javi Gracia er sáttur. vísir/getty
Javi Gracia, stjóri Watford, lét heldur athyglisverð ummæli fall eftir 3-0 sigur liðsins á Huddersfield í gær.

 

Watford hefur spilað frábærlega undir stjórn Javi Gracia á leiktíðinni en liðið er í sjöunda sæti með 19 stig eftir tíu leiki. Gracia segist vera mjög ánægður með tímabilið hingað til og segir einnig að Watford sé með besta leikmnannahópinn í deildinni.

 

„Fyrir mér þá erum við með besta leikmannahópinn í deildinni,“ sagði Gracia.

 

„Ég held að við munum ekki eiga möguleika á að vinna deildina en við munum svo sannarlega reyna að vinna hvern einstasta leik og reyna að gera það fyrir stuðningsmennina okkar, hjálpa þeim að njóta með okkur.“

 

Með sigrinum varð það staðfest að þetta er besta byrjun Watford á tímabili í ensku úrsvalsdeildinni.

 

„Við gerum okkar allra besta í öllum leikjum til þess að reyna að fá hagstæð úrslit. Það var mjög mikilvægt að vinna þennan leik og ég er mjög stoltur að hafa náð þessu takmarki, besta byrjun á tímabili frá upphafi.“

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×