Körfubolti

Körfuboltakvöld: Held að hann hafi dæmt þetta á líkum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Blikar voru heldur betur ósáttir við dóm undir lok leiks Breiðabliks og Hauka í Dominos-deildinni á fimmtudagskvöldið.

Sóknarvilla var dæmd á Breiðablik er fimm sekúndur voru eftir af leiknum en þá leiddu Haukarnir með einu stigi, 93-92. Strákarnir í Domino’s Körfuboltakvöldi kíktu á atvikið.

„Hann hefur séð eitthvað annað en við. Ég trúi að mann séu heilir í því sem þeir eru að gera. Þetta er hins vegar risa stórt. Þetta er eins og markvörður gerir mistök í fótbolta. Þetta er þar,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson annar spekingur Körfuboltakvölds á föstudaginn.

„Ég held að hann hafi dæmt þetta á líkum og þetta er glórulaus dómur,” bætti Jón Halldór við en innslagið má sjá í sjónvarpsglugganum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×